ÞINGMENN ! VERJIÐ YKKAR ÞJÓÐ !

 

Hvaða þjóðarleiðtogar myndu lýsa því yfir við fjölmiðla að þjóðin væri skuldbundin til þess að greiða himinháar fjárhæðir til ríkis sem hefur beitt þeim órétti?

Hvaða þjóðarleiðtogi myndi lýsa því yfir að við verðum að vera þátttakendur í alþjóðasamfélaginu ef við ætlum okkur að vera þjóð á meðal þjóða og þess vegna að gera eins og okkur er sagt?

Gæti samt bæði verið rétt (en er í raun vitleysa) ... en þú lýsir þessu ekki yfir.

Af hverju? Vegna þess að það gerir okkur að aumum samningsmönnum og veikir samningsstöðu okkar. Þá er vitað mál að auðveldasta leiðin til þess að stjórna Íslendingum og fá þá til þess að kvitta undir hvað sem er, er einmitt sú að hóta þeim að þeir verði útilokaðir úr alþjóðasamfélagi.

 Það eina sem á að koma út úr munni Forsætisráðherra opinberlega er að þjóðina verður að vernda, að hún hafi sinn rétt og að hún láti ekki Breta vaða yfir sig.

 Bretar eru snillingar í pólitískum klækjum. Það er Ríkisstjórn Íslands svo sannarlega ekki.

Þegar ég ræddi við þingmenn á fimmtudaginn og afhenti þeim nýja lausn á Icesave deilunni (sjá bloggfærslu mína neðar) sagði einn þingmaður Samfylkingarinnar við mig (og nú skammast ég mín fyrir að muna ekki hvað hann heitir) að hann vill ekki að landið lokist af, að hann vill að dóttir sín geti farið í skóla erlendis..

Hvaða vitleysa er þetta eiginlega? Er einhver að tala um að við Íslendingar ætlum að loka landinu og hefta ferðafrelsi fólks? Úr hvaða tunnu kemur svona málflutningur?

Við erum að krefjast þess að Ríkisstjórn Íslands standi upp og VERJI SÍNA ÞJÓÐ ÞEGAR Á HANA ER RÁÐIST! Er það til of mikils mælst?

Þarf þessi þjóð að ganga alveg fram að bjargbrúninni til þess að fólk fari að opna augun fyrir því sem er í gangi?

Ég ætla að skjóta inn hér einum ummælum um þennan samning sem ég rak augun í;

 "Ég sé ekki að nokkurt land í heiminum sé með jafnmiklar erlendar skuldir og Ísland eftir þetta. En ef Ísland ætlar að borga þetta [Icesave-skuldirnar], þá er samkomulagið nokkuð gott fyrir bresk stjórnvöld."Daniel Gros, framkvæmdastjóri Center for European Policy Studies í Brussel.

 Á mánudaginn verða þessir nauðungarsamningar teknir fyrir. Þá ætla ég að mæta á Austurvöll. Hvað með þig?


mbl.is Fámenn Icesave mótmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Engin hefur bent á þá staðreynd,að ef    við neitum,vekur það heimsathygli engu síður en hrunið og alt sem því er tengt. Það þýðir að við verðum krafin um skýringar og fáum þá pláss í heimspressunni,til að verja okkar málstað. Hugaðir réttlætiselskandi Víkingar. 

Helga Kristjánsdóttir, 13.6.2009 kl. 15:17

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Eða styðja okkar málsstað,öllu heldur.

Helga Kristjánsdóttir, 13.6.2009 kl. 15:55

3 Smámynd: Villi Asgeirsson

Beinlausu hryggleysingjarnir munu aldrei þora að taka áhættuna á því.

Villi Asgeirsson, 13.6.2009 kl. 17:52

4 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Þessi vita GAGNLAUSA ríkisstjórn á þó vissulega eitt sameiginlegt með okkar aumu verkalýðshreyfingu, lífeyrissjóðunum & bankakerfinu, þ.e.a.s. " þeir spila ÁVALT með VITLAUSU lið - þeir slá SKJALDBORG um svindlaranna ...., á kostnað þjóðarinnar!  Íslenskir stjórnmálaflokkar og verkalýðshreyfing er í raun ekkert að skilja sitt hlutverk...!  Þú bendir réttilega á m.a. eftirfarandi: "Við erum að krefjast þess að Ríkisstjórn Íslands standi upp og VERJI SÍNA ÞJÓÐ ÞEGAR Á HANA ER RÁÐIST! Er það til of mikils mælst?"

Kannski fær hver þjóð þá stjórn sem hún á skilið, kannski erum við bara hreinræktaðir glæpamenn sem flúðum frá Haraldi hárfagra þegar hann vildi rukka okkur um skatt og að við kæmum fram sem siðaðir víkingar...!  Svo var félagi Snorri (Baugs fréttamiðil þess tíma) fenginn til að skrifa sögu þessara "óreiðumanna" í svoldið RÓMANTÍSKUM blæ - þetta voru "hejtur & útrásar víkingar þess tíma...." Kannski hefur ekkert breyst, við erum ennþá jafn SIÐBLIND og jafn miklir sauðir og við vorum fyrir 11 öldum eða svo...!  Hvað á maður eiginlega að halda, verkin segja meira en orð - maður verður ítrekað ORÐLAUS yfir aumingjaskap & heimsku okkar spiltu & lélegu stjórnmálamanna...!

kv. Heilbrigð skynsemi

Jakob Þór Haraldsson, 17.6.2009 kl. 02:49

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Siðspyllt?Sauðir?    Já,ég man þá tíð að ég skammaðist mín fyrir að biðja um kvittun(þetta er svo ótrulegt),eða að telja seðla fyrir framan þann sem innti greiðslu af hendi,eins og ég væri að vantreysta þeim.   Skömmustan "breyttist" síðan yfir í að vera þvílíkur asni.

Helga Kristjánsdóttir, 17.6.2009 kl. 03:53

6 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

„þá er samkomulagið nokkuð gott fyrir bresk stjórnvöld!“ Segir þetta ekki allt sem segja þarf?

Ævar Rafn Kjartansson, 19.6.2009 kl. 22:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband