Föstudagur, 30. apríl 2010
Hér er hugmynd um nýja þjóðkirkju handa þjóð sem ræður sér sjálf
Já eigum við ekki kirkjuna?
Hvernig væri að við breyttum henni smá? Hvernig væri að við breyttum henni smá meira í takt við okkar innri manngildi? Okkar hugmyndir um hvað er fegurst hér í heimi? Okkar hugmynd um hvað skapar frið í þessum heimi? Okkar hugmynd um sannleikann í þessum heimi? Við ráðum þessu.. við en ekki einhverjir 50 karlar í hvítum kjól. Já þannig er það.. það erum við. Við þjóðin.
Svo hér er hugmynd sem er allt í lagi að velta upp..
Hvernig væri að við sameinuðum kirkju okkar í það að vera kirkja kærleikar og friðar? Leggjum niður Kristni nafnið á henni en viðurkennum þess í stað að í öllum trúarbrögðum er einhvern sannleik að finna. Viðurkennum það að hér á jörðu hafa verið vitrir meistarar sem gott er að hlusta á og fylgja því sem stendur hjarta okkar næst hverju sinni og að vali og trúar hvers og eins? Að eina markmið þessarar kirkju er að boða Kærleika og Frið. Fegurð og Umhyggju?
Að í okkar kirkju eru allir jafnir hverra titla, auða, kynhneigðar, gæfu eða ógæfu þeir hafa borið. Að í kirkju okkar íhugum við það sem sameinar okkur og styrkir. Það sem fær okkar til þess að vera betri manneskjur og líða betur. Þangað sem við getum leitað þegar á bjátar eða deila gleði. Þangað sem við finnum traust og umhyggju. Að í kirkjunni okkar afnemum við alla trú um syndir og djöful, boð og bönn. Afnemum allt sem táknar aðskilnað okkar manna á milli og hefur kostað stríð og þjáningu á þessari jörðu um aldaraðir.
Ætti það ekki að vera markmið í sjálfu sér að halda slíka kirkju? Myndi það þá skipta nokkru hvort þú værir trú eða trúlaus? Svartur eða bleikur? Stórfættur eða nefmjór? Myndi það ekki einu skipta að þú værir manneskja og fyndir til, elskaðir og værir einn af okkur?
Já svona kirkju gæti ég alveg hugsað mér.. Kirkju Friðar og Kærleika. Hvað með þig? :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 13. júní 2009
ÞINGMENN ! VERJIÐ YKKAR ÞJÓÐ !
Hvaða þjóðarleiðtogar myndu lýsa því yfir við fjölmiðla að þjóðin væri skuldbundin til þess að greiða himinháar fjárhæðir til ríkis sem hefur beitt þeim órétti?
Hvaða þjóðarleiðtogi myndi lýsa því yfir að við verðum að vera þátttakendur í alþjóðasamfélaginu ef við ætlum okkur að vera þjóð á meðal þjóða og þess vegna að gera eins og okkur er sagt?
Gæti samt bæði verið rétt (en er í raun vitleysa) ... en þú lýsir þessu ekki yfir.
Af hverju? Vegna þess að það gerir okkur að aumum samningsmönnum og veikir samningsstöðu okkar. Þá er vitað mál að auðveldasta leiðin til þess að stjórna Íslendingum og fá þá til þess að kvitta undir hvað sem er, er einmitt sú að hóta þeim að þeir verði útilokaðir úr alþjóðasamfélagi.
Það eina sem á að koma út úr munni Forsætisráðherra opinberlega er að þjóðina verður að vernda, að hún hafi sinn rétt og að hún láti ekki Breta vaða yfir sig.
Bretar eru snillingar í pólitískum klækjum. Það er Ríkisstjórn Íslands svo sannarlega ekki.
Þegar ég ræddi við þingmenn á fimmtudaginn og afhenti þeim nýja lausn á Icesave deilunni (sjá bloggfærslu mína neðar) sagði einn þingmaður Samfylkingarinnar við mig (og nú skammast ég mín fyrir að muna ekki hvað hann heitir) að hann vill ekki að landið lokist af, að hann vill að dóttir sín geti farið í skóla erlendis..
Hvaða vitleysa er þetta eiginlega? Er einhver að tala um að við Íslendingar ætlum að loka landinu og hefta ferðafrelsi fólks? Úr hvaða tunnu kemur svona málflutningur?
Við erum að krefjast þess að Ríkisstjórn Íslands standi upp og VERJI SÍNA ÞJÓÐ ÞEGAR Á HANA ER RÁÐIST! Er það til of mikils mælst?
Þarf þessi þjóð að ganga alveg fram að bjargbrúninni til þess að fólk fari að opna augun fyrir því sem er í gangi?
Ég ætla að skjóta inn hér einum ummælum um þennan samning sem ég rak augun í;
"Ég sé ekki að nokkurt land í heiminum sé með jafnmiklar erlendar skuldir og Ísland eftir þetta. En ef Ísland ætlar að borga þetta [Icesave-skuldirnar], þá er samkomulagið nokkuð gott fyrir bresk stjórnvöld."Daniel Gros, framkvæmdastjóri Center for European Policy Studies í Brussel.
Á mánudaginn verða þessir nauðungarsamningar teknir fyrir. Þá ætla ég að mæta á Austurvöll. Hvað með þig?
|
Fámenn Icesave mótmæli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 12. júní 2009
Er það til of mikils mælst að ég biðji um að leiðtogi þjóðarinnar hafi bein í nefinu?
Ætlar einfeldni og trúgirni Íslendinga engan endi að taka ?
Trúa menn því virkilega, hafandi heimsveldi til þúsund ára hinum megin við samningsborðið versus Svavar Gestsson að þetta hafi verið besti hugsanlegi samningurinn sem Íslendingum bauðst?
Að auðlindir okkar séu tryggðar og allt verði hér í stakasta lagi ef við undirritum þennan nauðungarsamning? Vegna einhverjar "klausu" í samningnum?
Sko klækir Breta felast fyrst og fremst í því að skuldsetja þjóðina með ríkisábyrgð svo kyrfilega að hún verður seinna neydd til þess að selja auðlindir sínar á brunaútsölu. Sami svanasöngurinn verður viðhafður þá... "ööö þið eruð jú búin að skuldbinda ykkur og þið verðið ef þið ætlið að vera þjóð á meðal þjóða að vera tilbúin til þess að selja... bla bla bla..."
Þetta byrjar nú allt með því samkvæmt Jóhannesi Birni á www.vald.orgað fyrst eru þjóðir skuldsettar í botn, svo er þeim ráðlagt að selja allavega einn ríkisbanka erlendum fjárfestum (sem svo kaupa smátt og smátt inn í ríkisrekin orkufyrirtæki) Svo þarf landið að gefa eftir meira og meira vegna þess að það festir sig í kóngulóarvef með undirskriftum sínum.... þetta er spil. Pólitískur leikur auðvaldsins sem hefur viðgengst í öllum þeim löndum sem IMF hefur starfað í. Lokið bara augunum fyrir því kæra Ríkisstjórn, fjölmiðlar og stuðningsmenn ESB. En það breytir ekki sannleikanum í lygi.
Það er verið að níðast á ykkar fólki og þið eruð þátttakendur í þeim dapra leik. Svona svipað og þið voruð þátttakendur í því að mæra skuldakóngana og verja þeirra leik.
Þar að auki hefur ekkert ykkar séð samninginn þið sem eruð samþykkt... þingheimur fær ekki einu sinni að sjá hann vegna skilyrða frá Bretum og Hollendingum. Haldið þið að breska þingið hefði leyft íslenskum stjórnvöldum að stjórna slíku hjá sér??
Þetta samþykkið þið... Kvittið undir blind. Glæsilegt !
Til hamingju með frábæran árangur !
Við hin sem ennþá höfum bein í nefi og hugrekki í hjarta og ætlum ekki að taka þátt í þessu sjónarspili verðum að mæta á Austurvöll á mánudaginn þegar samningurinn verður tekinn fyrir og láta heyra hátt í okkur.
|
Sjálfstæðismenn til bjargar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 11. júní 2009
Bréf frá mótmælanda á Austurvelli
Í dag gekk ég fyrir framan Alþingishúsið í þjóðbúningi Íslendinga og afhenti þingmönnum sem leið áttu fram hjá bréf með nýrri lausn á Icesave deilunni.
Þingmenn tóku misvel í hana en allir stoppuðu þó og ræddu við okkur.
Ég vil þakka öllum því fólki sem þátt tóku í dag og hvetja fólk til þess að mæta aftur á morgun kl. 15:00. Sigurinn verður ekki unninn fyrr en þessum samningi verður sturtað niður í klósettskálina.
Lausnina má lesa hér:
hvað við EIGUM AÐ GERA
Við eigum að lýsa því yfir að við getum ekki borgað meira en það sem innistæðutryggingar hafa fjármagn til og það sem eignir Landsbankans dekka en og svo bætum við því við að bresk endurskoðendastofa hafi sagt að eignirnar séu metnar á 95% af skuldum við Icesave (helber lygi og er eingöngu ætluð til þess að blekkja íslensk stjórnvöld og fá það til þess að samþykkja þennan horbjóðasamning en það er önnur saga)
Og ástæðan:
a) Vegna þess að Bretar settu hryðjuverkalög á Landsbankann þá rýrðu þeir eignir bankans og lögðu íslenska efnahagskerfið í rúst.
b) Vegna þess að Bretar geymdu peninga breskra sparifjáreigenda vaxtalausa inn í Englandsbanka í heila 7 mánuði.
c) Vegna þess að vextir þeir sem Bretar krefja Ísland um er langt umfram greiðslugetu landsins.
d) Vegna þess að meira og minna allt fé sem skuldakóngar eiga er geymt á bresku jómfrúareyjunum undir lögsögu bresku konungsfjölskyldunnar, þar sem ennþá hefur ríkt algjör bankaleynd þrátt fyrir gefin loforð og því hefur ekki verið hægt að sækja peningana fyrir breskan almenning.
e) Vegna meingallaðra kapítalískra reglna ESB um frjálst peningastreymi
Svo bætum við því við:
Ísland harmar að ríkisstjórn Breta ætli að kenna þjóðinni um þau afdrifaríku misstök sem þeir hafa gert á sínum eigin þegnum og ætli þjóð sem í búa 300.000 manns að bera skaða upp á fleiri hundruð miljarða.
Þessi upphæð myndi þjóðin aldrei geta staðið við og það vita bresk stjórnvöld. Enda virðist vera að tilgangur þeirra sé eingöngu að gera Ísland að einu fátækasta ríki heims. Hver ástæðan er fyrir því er íslenskum almenningi og stjórnvöldum algjör ráðgáta. (Nefnum ekkert að við vitum nú samt að það er eingöngu vegna þess að þeir vilja fá auðlindir okkar á brunaútsölu)
Við sem sagt látum klækina hjá breskum stjórnvöldum snúast gegn þeim sjálfum. Krókur á móti bragði.
Á þessu verðum við að standa fast með báðar fætur á jörðu og hvika ekki. Alls ekki. Á okkur horfir heimurinn sem sér að loksins er litla þjóðin hætt að láta níðast á sér. Þetta mun vekja almenning í kringum okkur til mikilla umhugsunar og koma af stað ákveðnum hreyfingum þar á bæ.
Hugsanlega verða lánalínur til landsins lokaðar og við munum þurfa að reyða okkur á landið sjálft og auðlindir þess til að lifa af. Sem betur fer eigum við nóg af fæði og heita vatnið okkar er dýrmætara en nokkur olía.
Hér mun metan og vetnisframleiðsla blómstra í kjölfarið og Íslendingar munu loks læra að verða fullkomlega sjálfbær þjóð öðrum óháð.
Landið mun aldrei verða eins og Kúba því að við lokum ekki á ferðamenn sem gefa mikinn gjaldeyri.
Landið mun ekki fara aftur á 19 öld einfaldlega vegna þess að það er ekki hægt að taka menntun og þá þekkingu á tækni sem við höfum aflað okkur síðustu 50 ár af okkur.
Þetta er spurning um tvennt..
Að láta kreppuna gera okkur gott og verða sjálfbær
eða
Að láta kreppuna gera okkur illt og missa landið í hendur á hákörlum.
Hvort skiptir meira máli; Peningar eða Land?
Ef lesendur skilja ekki áhyggjur mínar á þessum samningi þá vil ég benda þeim t.d. á að lesa greinina "Stundar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hryðjuverk" eftir Jóhannes Björn á www.vald.orgeða kynna sér varnarorð Michael Hudsons, John Perkins, nóbelsverðlaunahafann Flitz og fleiri og fleiri.
|
Ætla að sofa í tjöldunum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Miðvikudagur, 10. júní 2009
Opið bréf sem sent var til allra þingmanna - Tveir hafa svarað
Sælir þingmenn,
Jóhannes Björn varaði við hruninu eins og þið vitið aftur og aftur og aftur og aftur... en það var aldrei hlustað.
Er ekki kominn tími til að á hann er hlustað?
Grein hans; "Stundar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hryðjuverk?" byrjar svona;
"Þegar Gordon Brown kallaði íslenskan banka hryðjuverkastofnun—setti hann bókstaflega á bás með óþokkum sem sprengja saklaust fólk í tætlur—þá vissi hann vel að hann var að stefna öllu íslenska bankakerfinu í gjaldþrot. Seinna viðurkenndi Brown í fyrirspurnartíma breska þingsins að hann hafi notað Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) gagngert til þess að kúga íslensku þjóðina. Hvað vakir eiginlega fyrir þessum aðilum?"
Framhaldið má lesa hér www.vald.org
Nauðsynleg grein fyrir alla þingmenn að lesa.
Ísland á landið sitt, auðlindir, menntað og sterkt fólk, og fallegt land sem er vinsælt heim að sækja. Við getum aldrei orðið eins og "Kúba norðursins"
Leyfum öllum lánalínum að lokast til landsins ef hótunin er sú. Það verður töff, það vitum við. En við eigum landið okkar og þess vegna munum við geta bjargað okkur a.m.k. um fæði og orku (metan og vetnisframleiðsla mun tvíeflast) Við getum ekki farið aftur til 19 aldarinnar eins og Jón Daníelsson sagði (það er nú samt ekkert afar slæmt) einfaldlega vegna þess að við höfum meiri þekkingu en þá og upplýsingatækni. Tökum frekar skellinn núna, lýsum okkur default gjaldþrota en að steypa okkur í 1000 miljarða skuld og standa þá uppi í þjóðargjaldþroti þar sem auðlindir okkar verða seldar sérvöldum stórfyrirtækjum á brunaútsölu. Þannig hefur AGS ALLTAF starfað. Engin undantekning. Ég endurtek, ENGIN !! Þetta megum við ekki láta gerast.
Við munum alltaf geta orðið okkur úti um lágmarkslyf, fæði og lágmarks eldsneyti.. (þjóðin getur lagt bílaflotanum frekar niður í smástund en að tapa öllu til frambúðar) Við verðum að horfa á heildarhagsmuni þjóðarinnar en ekki stundar "gæði". Þar að auki mun almenningur í löndunum í kringum okkur aldrei sætta sig við að við yrðum einangruð til frambúðar, það þykir ekki beint vera INN að níðast á öðrum þjóðum, hvað þá smáþjóð friðar sem er hluti af Norðurlöndunum. Við munum að auki alltaf fá gjaldeyri inn til landsins í gegnum ferðaiðnað og væntanlega orkusölu til álvera. Ef það er ekki búið að hóta að hirða þann gróða líka (álversgróða)
Neysluhyggja vesturlanda er að ganga á auðlindir heimsins, þetta vitið þið. Íslendingar hafa gott af því að takast á við þann vanda sem leiðir til þess að við þurfum að læra sjálfbærni. Að vera sjálfbær þjóð væri það besta sem fyrir okkur gæti gerst. Að vera ofurseld heimsauðvaldinu væri það versta..Það allra versta val sem þið gætuð tekið fyrir okkar hönd.
Þjóðinni sárvantar leiðtoga sem telur í hana kjarkinn... Kæru Ríkisstjórnarþingmenn... þið hafið gert allt annað en það og þá sérstaklega þingmenn Samfylkingar. Þið letjið þjóðina, hræðið hana og reynið að telja henni trú um að hún geti á engan hátt bjargað sér sjálf. Þjóð sem lifir á einu gjöfulasta landi í heiminum á ekki að geta bjargað sér sjálf...?? Hvernig fóru þá Indjánar að? Bíddu já, ég var búin að gleyma, þeim var útrýmt af Bretum. Er ég í útrýmingarhættu?
Ef við eigum að meta hvort sé mikilvægara land eða peningar þá vitið þið hvað svarið er. Sá sem peningana á getur reynt að kaupa landið en ef sá sem á landið vill ekki selja þá getur hann auðveldlega sagt "NEI, og farðu bara af landinu mínu. Þú getur reynt að kaupa land á tunglinu, þetta land er ekki til sölu."
Þetta Icesave mál er svo alvarlegt og framkoma AGS í okkar garð að ég get ekki trúað því að þið leyfið þessu yfir okkur að ganga.
Það verður ekki með nokkru móti hægt að fyrirgefa það ef þessi gjörningur verður samþykktur á Alþingi Íslendinga. Ég held reyndar að ég muni aldrei geta litið það hús framar til auglitis ef sjálfstæði þjóðarinnar verður selt með þessum hætti.
Undirlægjuháttur er ekki sterkri og viti borinni þjóð sæmandi, kæru alþingismenn. Þið verðið að vekja gamla Jón Sigurðsson genið upp og segja;
NEI, VIÐ MÓTMÆLUM ÖLL !
Sjáumst í gegnum alþingisgluggan 
Björg F. Elíasdóttir
Þess má geta að bæði Ólína Þorvarðardóttir og Margrét Tryggvadóttir hafa séð sér fært að svara. Við þekkjum skoðanir Ólínu vel í gegnum blogg hennar en Margrét sagði að hún mun gera allt sem í hennar valdi stæði til þess að koma í veg fyrir þennan samning. Lára Hanna birti á bloggi sínu opið bréf til þingheims. Það er athyglisvert að það eru sex alþingismenn sem hafa svarað því bréfi þegar þetta er ritað, allt konur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 10. júní 2009
Grein eftir Jóhannes Björn sem allir þingmenn þjóðarinnar ættu að lesa áður en þeir greiða atkvæði um Icesave
Jóhannes Björn varaði við hruninu aftur og aftur og aftur og aftur... en engin hlustaði..
Er ekki kominn tími til þess að þingheimur og já þjóð öll hlusti á það sem hann hefur að segja?
"Eins og Falið vald benti á fyrir 30 árum—og ef eitthvað þá hefur ástandið snarversnað—er AGS stofnun sem sérhæfir sig í að koma ríkjum á hausinn svo þau galopnist og haldi brunaútsölu fyrir útvalda aðila. Formlega hefur AGS þrjú markmið: einkavæðingu, afnám reglugerða og djúpan niðurskurð á félagslegri þjónustu. Kerfið sem sjóðurinn setur á laggirnar kemur þjóðum sjálfkrafa á vonarvöl og gengur í stuttu máli út á að viðhalda okurvöxtum"
og áfram heldur hann...
"Bretar frömdu glæp þegar þeir beittu hryðjuverkalögum gegn Íslandi. Til þess að koma í veg fyrir að þeir þyrftu að svara til saka fyrir þennan glæp og hugsanlega borga fyrir hann með hárri skaðabótagreiðslu, þá tóku þeir höndum saman við nokkra aðila og neyddu Ísland að samningaborðinu. Þetta tókst með því að koma í veg fyrir allar fyrirgreiðslur til landsins. Bretar, Hollendingar, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og líklega yfirstjórn Evrópusambandsins stilltu landinu þannig upp við vegg."
Greinina má lesa í heild sinni hér www.vald.org
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 9. júní 2009
Michael Hudson varaði einmitt við þessu..
Allt gengur eftir áætlun AGS - Allar auðlindir landsins verða komin í eigu stórveldanna eftir 15 ár.
Nákvæmlega eins og Michael Hudsons sagði að myndi gerast ef við samþykkjum að borga þessi lán.
Fyrir bankahrun var ekki hlustað á nein varnarorð... og enn er ekki hlustað á nein varnarorð... Eiga Íslendingar ekki bara skilið það sem þeir eru að kalla yfir sig??
Á tveimur dögum hefur þessi Icesave samningur hækkað um 25 miljarða kr. plús 200 miljónir í vexti !!
Við borgum 5 miljónir á dag í vexti frá AGS.
Við erum að taka lán frá Norðurlöndum, Rússlandi, ESB og líklegast Kína.
Hvar endar þetta??
Sér það engin að við getum þetta ekki... það er ekki með nokkru móti hægt.
Ríkisstjórn Íslands verður að segja okkur hver eru veðin fyrir þessum lánum...
Eins og það lítur út fyrir í dag þá munum við vera búin að tapa ÖLLUM AUÐLINDUM landsins eftir 15 ár.
Ég hvet fólk til þess að kynna sér hvernig Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur starfað.... þetta er nákvæmlega eftir hans forskrift. Mikið rosalega erum við þægileg fórnarlömb... svo ofboðslega gott að eiga við okkur og stjórna.
Ég vorkenni þeim sem samþykkja Icesave lánið á Alþingi... og já landsmönnum öllum sem samþykkja þennan gjörning. Það verður ekki auðvelt fyrir þá að horfa á í augu barna sinna og viðurkenna að þau seldu landið fyrir "7 ára frið og þægindi"
Má ég frekar biðja um að við verðum olíulaus í 3 ár... mun mun skárri kostur.
Ætlar þú lesandi góður að rísa upp og mótmæla þessum gjörning? Ætlar þú að vera með í að frelsa Ísland undan oki auðvaldsins eða ætlar þú að sitja hjá og leyfa þessu að gerast?
Þetta tækifæri sem er núna til þess að hafa áhrif kemur ekki til okkar aftur...
Þegar Ríkið er búið að skrifa undir, þá er það orðið of seint..
VIÐ VERÐUM AÐ STÖÐVA ÞETTA BRJÁLÆÐI NÚNA !!!
|
Útlánin eiga að greiða Icesave |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 9. júní 2009
Hvaða veð eru sett fyrir þessu láni?
Já svaraðu því Steingrímur.
Það ætti að vera lágmark fyrir þjóð og þing að vita, hvaða veð við setjum fyrir þessu láni.
Fiskiauðlindirnar? Orku og vatnsauðlindir? Jarðnæði? Siglingaleið norðan Ísland? Hugsanlegar olíulindir? Allt þetta kannski?
Fjölmiðlamenn, standið ykkur í vinnunni. !!
|
Valtur meirihluti í Icesave |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 8. júní 2009
Það er enn ljós í myrkri - VG liðar margir hverjir eru mjög ósáttir
Bara vextirnir af Iceslave láninu jafngildir 200 þús. tonn af þorskkvóta á ári. Þess má geta að núna er 150 þús. tonn leyfð til veiða árlega. Hvernig á þjóð að borga þetta til baka á 15 árum án þess að afhenda auðlindir sínar? Getur einhver sagt mér það án þess að nota útrásartungumál? (líklega kannski ef aðstæður verða hugsanlega bjartari þá ef..)
Hvernig er hægt að réttlæta svona horbjóðar nauðarsamning??
Þegar ég var á Austurvelli í dag kallandi hátt og innilega "Við látum ekki kúga okkur" kom mér það skemmtilega á óvart að tveir þingmenn VG komu að máli við mig og gáfu mér baráttukveðju. Annar þeirra sagði meira að segja að það væri einmitt þetta sem Ríkisstjórnin þyrfti á að halda... að almenningur risi upp gegn þessu. Ríkisstjórnin getur ekki leyft sér það vegna stöðu sinnar... Almenningur getur það. Alveg eins og almenningur í Argentínu þurftu að gera. Þeirra skuldir voru 54% af vergri landsframleiðslu. Okkar ef við samþykkjum Icesave verða 102% !!!
Hugsið nú vel og vandlega hvað við erum að kalla yfir okkur með því að samþykkja þetta plagg. En áður en þið hugsið... takið þá fyrst niður pólitísk lituð gleraugu ef þau eru fyrir hendi. Því þetta hefur ekkert með pólitík að gera. Þetta er spurning um hvort að þjóð ætlar að lifa þetta af.
|
Blekkingar, heimska og hótanir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 8. júní 2009
Svona undirlægjuháttur er ekki sterkri og viti borinni þjóð bjóðandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)



halkatla
leifurl
jonaa
hronnsig
prakkarinn
svanurmd
hk
einherji
dofri
brylli
jensgud
arh
aevark
andreaolafs
islandshreyfingin
eirikurbergmann
ingabesta
gmaria
klaralitla
sigmarg
sms
mittmat
bleikaeldingin
kiddirokk
valdisig
ingibjorgelsa
tommi
gutti
birkire
photo
vefrettin
rustikus
toshiki
zuuber
poppoli
margretsverris
vefritid
danmerkufarar
ingolfurasgeirjohannesson
sigurjonsigurdsson
joklasol
markusth
alexm
malacai
arikuld
arnfinnur
axelpetur
gattin
bifrastarblondinan
gagnrynandi
morgunblogg
diva73
hlekkur
tru
kreppan
fun
krilli
olafurfa
fullvalda
monsdesigns
tbs





Og getum við borgað þessar skuldir? Skrifum við undir samninga sem við getum ekki staðið við? Hvað gerist ef við getum ekki staðið við gerðan samning?
Já líklega ef allt gengur upp og þessi og hin skilyrðin verða í heimunum þá mun okkur takast að og ef .....
Þetta er nákvæmlega sami svanasöngurinn og Bankarnir okkar elskulegu (útrásarpésarnir) sungu fyrir hrunið...
Eru sporin ekkert farin að hræða?
Eignasafn Landsbankans er óvituð stærð með öllu.
Og þetta er nákvæmlega sama aðferð og IMF hefur notað í öllum þeim löndum þar sem þeir hafa komið sem handrukkarar stórveldanna til að hirða upp þjóðlindir þeirra landa. Þar er engin undantekning á.
Erum við eitthvað öðruvísi? Það er mikill barnaskapur að halda slíkt eða vanþekking á hvernig sjóðurinn og heimsveldin starfa og hafa gert undanfarna áratugina... (árhundruðin)
Eftir 7 ára "frið" þá munum við ekki getað borgað. Það er De factum.
Þá verður mikið erfiðara fyrir okkur að segja. Nei við borgum ekki af því að við erum búin að skuldbinda okkur til þess. Það höfum við ekki gert núna.
Það er verið að selja land og þjóð á alheimsmarkaðstorg Mammons. Þetta er blákaldur veruleiki og því fyrr sem almenningur gerir sér það ljóst, því fyrr verður hægt að stöðva þetta brjálæði.
Þegar þessi fjárhæð sem Icesave skuldbindingar okkar eru leggjast ofan á fyrri skuldir, þá eru skuldir okkar orðnar 102% af vergri landsframleiðslu. Þegar almenningur í Argentínu gerði uppreisn þá voru skuldir þess lands 52%
Það sjá það allir að þetta er óðs manns æði... við getum ekki samþykkt eitthvað sem við getum ekki staðið við nema kannski ef allt fer á hin bestasta veg vonandi ef bjartsýnustu spár rætast...
En þess ber að geta að allar spár benda til hins gagnstæða..
Ég vil frekar vera dæmd fyrir að borga ekki fáránlegar kröfur af þeim sem reyna að kúga mig en að láta kúga mig og dæma mig í eilífða ánauð .... Réttlætið mun sigra að lokum, en einungis ef við krefjumst þess.
Svona undirlægjuháttur er ekki sterkri og viti borinni þjóð bjóðandi.